
Kristján Gíslason
Langflestir kannast við Kristján Gíslason. Hann hefur verið áberandi í íslensku tónlistarsenuni síðan 1991, meðal annars sem forsöngvari hljómsveitanna Spútnik og Herramenn. Margir muna eftir laginu “Birta” eða “Angel” sem fór fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2001 þar sem Kristján var aðalflytjandi, en Kristján hefur einnig farið fjórum sinnum út í keppnina sem stuðningsrödd. Hann hefur sungið með flestum tónlistarmönnum landsins við óteljandi tilefni. Kristján er með háa og fallega rödd og líflega sviðsframkomu.
Alma Rut Kristjánsdóttir
Alma byrjaði að vinna sem tónlistarmaður árið 2004 þegar hún tók þátt í söngleiknum Hárinu. Síðan þá hefur hún sungið með mörgum af þekktustu tónlistarmönnum landsins og tekið þátt í ótalmörgum stórtónleikum og viðburðum. Eitt það skemmtilegasta sem hún gerir er að syngja á böllum og skemmta fólki. Hún er búin að syngja með hljómsveitinni Todmobile síðan 2009 og var einnig í kántrýhljómsveitinni Vestanáttin. Hún hefur tvisvar sinnum farið út í Eurovision og sungið raddir fyrir Íslands hönd. Alma er með stóra rödd og stærra bros.
Alma er á Instagram @almarutkr


Rakel Pálsdóttir
Rakel sigraði Söngkeppni Samfés árið 2004 og fór þá tónlistarferill hennar á flug út frá því. Hún hefur fjórum sinnum sungið lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins auk bakradda og komið fram við hin ýmsu tilefni. Hún hefur sungið með þekktum tónlistarmönnum hér á landi við ýmis verkefni. Rakel stundaði söngnám við Tónlistarskóla FÍH og stofnaði þá hljómsveitina Hinemoa sem spilaði víða um land, auk erlendis. Hún hefur gefið út sína eigin tónlist ásamt lög eftir aðra. Jólaplata hennar kom út árið 2022 og var plata vikunnar á Rás 2 á þeim tíma. Rakel er með bjarta rödd og mikla útgeislun.
Hvernig varð NEONBANDIÐ til?
Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður og lagahöfundur landsins í marga áratugi, fékk Kristján Gísla og Ölmu Rut með sér að vera í sýningu á Hótel Grímsborgum árið 2017, ásamt Þorsteini Eggertssyni og píanóleikaranum Birgi Jóhanni Birgissyni.
Flutt voru lög Gunnars Þórðarsonar með textum Þorsteins Eggerts þar sem þeir sögðu sögur á milli laga og sögðu frá tónlistinni þeirra.
Sú sýning gekk vonum framar og urðu þær yfir 50 talsins, þannig að næsta ár var ákveðið að setja upp ABBA sýningu og árið þar á eftir Bee Gees sýningu. Sett var einnig upp sýning þar sem flutt voru lög tengd Vestmannaeyjum, þjóðhátíðarlög og lög eftir tónlistarmenn frá Eyjum.
Fengnir voru ýmsir tónlistarmenn með í sýningarnar, en Gunnar, Kristján, Alma og Birgir voru ákveðinn kjarni ár eftir ár. Allar þessar sýningar urðu vinsælli en búist var við og skemmtu þau nánast öll föstudagskvöld og öll laugardagskvöld frá hausti fram að sumri, stundum yfir sumarið líka.


Árið 2022 fengu þau Kristján og Alma söngkonuna Rakel Páls með sér í lið í sýningu til heiðurs Olivia Newton-John þar sem lög úr Grease blönduðust inn í. Samstarfið gekk frábærlega og árið eftir héldu þau þrjú áfram, ásamt Birgi Jóhanni píanóleikara, með DISCO sýningu til heiðurs skemmtistaðnum Hollywood, sem var einn vinsælasti skemmtistaður landsins árin 1978-1987.
Allar þessar sýningar gengu vonum framar og fengu ótalmörg hrós fyrir frábæra skemmtun og góðan söng, þannig að eftir að þau hættu með sýningar á Hótel Grímsborgum fóru þau Kristján, Alma og Rakel að koma fram á hinum ýmsu viðburðum, einkasamkvæmum og árshátíðum.
Oftast koma þau með 30-45 mínútna innkomur, lesa salinn og kvöldið þannig að ýmist eru sungin róleg og notaleg lög eða tónlist til að koma fólki í stuð og stemningu.
En þau geta líka séð algjörlega um ballið á árshátíðum, oftast með tilbúnu undirspili en þau geta líka komið með fullskipaða hljómsveit með sér þar sem bandið er skipað bestu hljóðfæraleikurum landsins.

